Sunday, April 21, 2013

Viðtal vegna sjálfsútgáfu



Rósa hefur alltaf haft þörf fyrir að segja sögur…

rosa1

„Ég hef alltaf haft þörf fyrir að segja sögur, hvernig sem ég geri það.“

Allt frá barnsaldri hefur það verið óbilandi áhugi og elja sem hefur hvatt Rósu Grímsdóttur áfram við að koma efni sínu á framfæri.

Ég hafði fylgst með Rósu Grímsdóttur um skeið, svo það hefði ekki átt að koma mér á óvart að hún myndi stinga upp á skype, þegar ég bað hana um viðtalið. Því hún er úrræða góð og nýtir sér tæknina fyrir samskiptin og sparar þannig peninga og tíma. Ég samþykkti í ljósi þess að minn tími er líka dýrmætur.

Það var með eftirvæntingu og tilhlökkun þegar ég settist niður fyrir framan tölvuskjáinn, með upptökutækið, stílabókina, blýantinn og útprentaðan spurningarlista á skrifborðinu og beið eftir að viðmælandinn minn kæmi inn á skype. Á meðan renndi ég yfir fésbókina. Nákvæmlega klukkan átta, hringdi Rósa og ég svaraði henni. Við horfðum á hvor aðra í gegnum vefmyndavélarnar, heilsuðum og heyrðum að hljóðið var á, svo að allt var eins og það átti að vera.
Það sem vakti athygli mína fyrst var hversu litríkur bakgrunnur Rósu var. Veggurinn var grasgrænn og loftið himinblátt. Það var auðséð að þarna bjó ekki aðeins rithöfundur heldur einnig listakona. Veggirnir voru líka prýddir japönskum myndum og eitthvað af þeim hafði Rósa teiknað/málað.
Við erum ekkert að eyða tíma okkar þannig að við vindum okkur í viðtalið.
Rósa Grímsdóttir eða Rósa Novella? spyr ég því ég hafði heyrt bæði þessi nöfn og vildi fyrst og fremst vita hvort nafnið höfundurinn hygðist nota.
„Ég mun trúlega aðeins nota Rósa Novella nafnið á erlendum markaði, það er þjálla.“
 Hversu lengi hefur þú verið að skrifa og hvað varð til þess að þú byrjaðir á því?
„Ég hef skrifað frá því ég man eftir mér. Í raun byrjaði ég að teikna sögur áður en ég fór að skrifa þær. Hver teikning sagði heila sögu. Ég hef alltaf haft þörf fyrir að segja sögur, hvernig sem ég geri það. Þegar ég kunni ekki að skrifa þá hjálpuðu þau fullorðnu mér og skrifuðu við myndirnar svo að það sæist um hvað sagan var. Um leið og ég kunni að skrifa, fór ég að skrifa sögur.“
Rósa Grímsdóttir byrjaði ung að koma efni sínu á framfæri með því segja framhaldsögur í bekknum en kennarinn var ekki alveg sáttur því að krakkarnir áttu að vera að læra.
Þegar Rósa var um tólf ára gömul skrifaði hún bók með vinkonu sinni og freistuðu þess að fá útgefið hjá Æskunni. Þær fóru til fundar við ritstjórann, sem gekk mjög vel en einmitt á þessum tíma urðu ritstjóra skipti svo að handritið týndist og fannst aldrei aftur en þær stöllur komust í staðinn, að sem kynnar í útvarpsþættinum lifandi.
Á svipuðum tíma samdi Rósa sitt fyrsta leikrit og hélt í framhaldinu leiksýningu.
Við hlógum að þessum frásögnum og ég gat alveg séð Rósu fyrir mér, sem dökkhærða, smávaxna stúlku sem náði að smeygja sér á fremsta bekk og allir hinir komu á eftir henni. En hún er einmitt leiðtogi í dag.
 Hvernig efni skrifar þú?
„Ég skrifa aðallega furðusögur en annars er ég ófeimin við að skrifa alla stíla og tegundir.  Sögurnar hafa það flestar sameiginlegt fjalla um sterkar tilfinningar eins ótta, kvíða, afleiðingar eineltis, einveru, það að vera útundan í samfélaginu og fjölskyldudrama. Upp á síðkastið er ég farin að skrifa meira metafiction.“ (Metafiction mun vera einskonar endurspeglun sjálfsskáldskaps, hafi ég skilið það rétt).
Hún hefur þrisvar sinnum tekið þátt í Nanowrite en þar keppast höfundar við að skrifa fimmtíuþúsund orð á einum mánuði.
Rósa er jafn fjölhæf og hún er dugleg við að koma efni sínu á framfæri. Hennar fyrsta raunverulega opinbera birting ef það telst með var á huga.is en þar birti hún smásögu.
Rithringur.is hefur verið annað heimili Rósu frá árinu 2004 en þar getur hún deild efni sínu með öðru skrifandi fólki. Ég verð þó að geta þess að Rósa er einn virkasti meðlimurinn á Rithringnum. Þessar vikurnar fer hún fyrir hópi sem vinnur að útgáfusafni smásagna sem mun birtast sumarið 2013 en Rósa var í forsvari fyrir smásaganasafni sem kom út árið áður.
Stærsta verk Rósu til þessa er bókaflokkurinn um Línu Descret en fyrsta bókin af fimm kom út árið 2011. Bækurnar skrifaði Rósa á einum þremur árum. Ekki slæleg vinnubrögð það því að það hér er ekki um neinn doðrant að ræða eða heilar 546 blaðsíður. Þegar hún vann að sögunum sendi hún heilu kaflana í rýni á Rithringinn. Það var ekki nóg með að Rósa skrifaði handritið heldur vann hún alla vinnuna við að koma því á framfæri.
Þú gafst út bókina Lina Descret, hvernig gekk það fyrir sig?
„Það var vegna vinnu minnar í Lifandi vinnusmiðjunni sem ég ákvað að fara út í sjálfsútgáfu. Áður hafði ég verið staðráðin í að fara til útgefenda en eftir að hafa lært að vera frumkvöðull skipti ég um skoðun. Ég sá líka að þetta var hægt þegar ég hélt á útprentuðu eintaki af bókinni frá Create space. En þá var ég líka búin að vinna alla vinnuna sjálf, alveg frá grunni. En fengið dygga aðstoð á námskeiðinu Myndlýsingar og bókagerð. Sérstaklega við kápuhönnunina.
Einnig hafði ég fyrir nokkrum árum haldið á sjálfútgefnu eintaki af bók sem ég ritstýrði og sú tilfinning var ólýsanleg.
Það sem spilaði þó langmest inn í þessa ákvörðun var að furðusögur höfðu á þessum tíma ekki verið upp á pallborðinu hjá forlögum. Ég hafði heyrt endalausar sögur af því þar sem furðusögum hafði verið hafnað. Ég vildi ekki fara þessa leið ef það voru allar líkur á því að mér yrði hafnað áður en ég fengi tækifæri.
Ég hafði öðlast smá reynslu eftir að hafa lært að setja upp bókina mína fyrir Create space.  Ég hafði líka lesið mér til og lært mikið um útgáfu á Myndlýsinga- og bókagerðarnámskeiðinu. Ég hafði samband við Óðinsauga og fékk aðstoð við að láta prenta bækurnar.
Þær voru prentaðar í Kína. Allt kostaði þetta heilan helling en aðalútgjöldin voru prent- og auglýsingakostnaðurinn. Það var líka svakaleg vinna við að dreifa bókunum og halda utan um þetta allt saman.“ Endar Rósa.
Er eitthvað sem þú myndir gera öðru vísi ef þú værir að fara út í sjálfsútgáfu aftur?
„Þó að sjálfsútgáfan og allt sem henni fylgdi hafi verið rosaleg vinna þá sé ég ekki eftir neinu en ég mun gera margt öðruvísi. Vegna þess að ég hef komist að því að  minnsta áhættan er fólgin í því að gefa út rafbækur og hef fært mig frekar í þátt átt og að nota print on demand eða prentun eftir pöntun. Við gáfum út smásagnasafn Rithringsins 2012 sem rafbók og nýttum okkur print on demand. Aðaldraumurinn er að reyna komast í samstarf við Forlag. Sjálfsútgáfan étur upp allan tímann sem maður hefur til að sinna sköpun sinni en engu að síður en þetta lærdómsríkt.“
Hvernig bók er Lína Descret og hvenær er von á næstu bók?
„Þetta er myndskreytt furðusaga um skaparatortímandann Línu Descret og höfðar til ungs fólks. „young adult“ sem sækir aðallega innblástur frá japönskum teiknimyndum (anime) og japönskum myndasögum (manga). Bókin fjallar um byltingu í heimi þar sem tortímendur eru kúgaðir af þeim sem sköpuðu þá, sköpurunum. Tortímendur mega alls ekki skapa og skaparar mega ekki undir neinum kringumstæðum tortíma. Aðalpersónan, hún Lína Descret, er einstök í þessum heimi þar sem hún er hálfur skapari og hálfur tortímandi. Vegna lögmála þessa heims vekur þessi mótsagnakennda tilvist hennar andúð.
Ég er að vonast til þess að önnur bókin komi út í september en endurskrif hafa setið svolítið á hakanum vegna vinnunnar við smásagnasöfn Rithringur.is.
Ég get svarið fyrir að ég get ekki betur séð en að Rósa sé farin að ókyrrast, trúlega eru fráhvarfseinkennin frá skrifunum byrjuð að herja á hana. En líklegast er það smásagnasafn Rithringsins sem bíður hennar. En áður en ég kveð hana langar mig að vita hvert framhaldið verður hjá henni og hún bunar út úr sér:
„Halda áfram að gefa út bækurnar og frumsýna fyrsta myndbandið úr myndbandaskáldsögunni sem ég er að vinna að ásamt bróður mínum, á hrekkjavökunni.  Skrifa, myndskreyta og jafnvel að halda áfram að taka þátt í útgáfu á smásagnasöfnum Rithringsins.“
 Við kveðjumst og ég sit eftir með fullt af efni til að vinna úr og stytta því að viðtalið tók rúma tvo tíma. Alveg er ég viss um að Rósa hafi skráð sig inn á Rithringinn til að stýra framkvæmd smásagnasafnsins, lesa yfir sögurnar, gagnrýna. Ég smitast af atorku hennar og byrja að skrifa viðtalið.
 Sirrý Sig.

Friday, August 31, 2012

Sjálfsútgefin fantasía




Bókaflokkur um sköpun og tortímingu


Lína Descret er íslensk myndskreytt fantasía sem sækir aðallega innblástur frá japönskum teiknimyndum (anime) og japönskum myndasögum (manga).  Bókin er sú fyrsta í fimm binda bókaflokki sem  fjallar um byltingu í heimi þar sem tortímendur eru kúgaðir af þeim sem sköpuðu þá, sköpurunum.  
 
Skaparar skapa tortímendur. Tortímendur eru kúgaðir í þessum heimi og lokaðir inni þar sem óttinn við mátt þeirra er afar mikill. Þann ótta má rekja til stríðs sem háð var á milli þessara tveggja tegunda fyrir um 1000 árum síðan. Sá ótti kemur þó ekki í veg fyrir að tortímendur séu notaðir sem þrælar skaparanna. En eingöngu eftir að hafa gengist undir stranga þjálfun í búðum fyrir tortímendur.

Ein af aðalpersónunum, Anna Fíl er þó undantekning þar sem hún er talin vera friðsamur tortímandi og fær því að ganga laus. Tortímendur mega alls ekki skapa og skaparar mega ekki undir neinum kringumstæðum tortíma.

Aðalpersónan er einstök í þessum heimi þar sem hún er hálfur skapari og hálfur tortímandi. Vegna lögmála þessa heims vekur þessi mótsagnakennda tilvist hennar upp andúð.

Með heiminn á móti sér, getur Lína Descret, eini skaparatortímandinn komið á friði á milli þessara tveggja tegunda og stöðvað þeirra eilifa stríð?

Bókin fæst í verslunum Eymundsson, Nexus, bóksölu stúdenta, Forlagsbúðinni á Fiskislóð  eða hjá höfundinum sjálfum.  Bókin er einnig til sem rafbók á www.emma.is.

Facebooksíðan:
http://www.facebook.com/pages/L%C3%ADna-Descret/226033340780609

Sýnishorn úr bókinni:
http://issuu.com/rosanovella/docs/l_na_descret-s_nishorn?mode=window&backgroundColor=%23222222






Thursday, November 10, 2011

Gagnlegar heimasíður fyrir sjálfsútgáfu


Þar sem mjög lítið efni er til um sjálfsútgáfu á íslensku, er hér smá listi sem er þó engan veginn tæmandi en er fín byrjun.


Systursíða critquecircle (http://www.critiquecircle.com/).  Netsamfélag þar sem hægt er að senda inn sögur til að fá gagnrýni, rýna aðra, lesa greinar, umfjallanir um bækur og margt fleira.  Ritsmiðja hefur svo verið haldin á vegum rithringsins í nokkur ár á bókasafni Kópavogs.

http://www.nanowrimo.org/en  (National novel writing month.)

Alþjóðleg keppni sem er í fullum gangi núna og gengur út á að skrifa 50.000 orð í einum mánuði, frá 1.nóvember til 1.desember.  Þetta snýst ekki um gæði heldur að klára eitthvað og það eru veglegir vinningar í boði fyrir þá sem ná orðafjöldanum.  Eins og til dæmis frá createspace.


Hefur verið stuðningsaðili nanowrimo í fjölda ára.  Sjálfsútgáfufyrirtæki sem bíður upp á að vinningshafar fái stafrænt eintak af bókinni sinni.  Í ár bjóða þeir í fyrsta sinn upp á fimm frí eintök á bókinni.  Það þarf ekki að vera handritið sem var klárað í nanowrimo heldur hvað sem er.  Gífurleg lærdómsreynsla af því að setja upp bókina sem getur hjálpað til við byrja sjálfsútgáfuna.  Mjög hvetjandi að sjá bókina sína á prenti.

Bjóða upp á tól eins og covercreator, þar sem hægt er að hanna kápuna sína frá grunni eða nota úr myndasafni þeirra.


Snilldarsíða sem kennir manni frá a til ö hvernig eigi að setja upp bókina sína.  Upplýsingar um spássíur, blæði, upplausn á myndum, breyta í PDF skjöl og margt fleira.  Þó að síðan sé aðallega hugsað til þess að hjálpa fólki við að setja upp bókina sína fyrir createspace, er engu að síður hægt að nota hana sem stökkpall fyrir aðrar sjálfsútgáfur.

Fleiri sjálfsútgáfur

Er sjálfsútgáfa rétt eins og createspace.  
Sjálfsútgáfa sem sérhæfir sig í myndabókum.

Íslensk sjálfsútgáfa.  Fullt af frábærum ráðum þar.  Allt frá vel heppnaðri fjölmiðakynningu til þess hvernig eigi að útbúa heimasíður með sem bestum árangri.

,,PublishIslandica gefur út bækur með gildi gamalkunnra hefða í bókaútgáfu að leiðarljósi. Allt of lengi  hafa útgefendur litið framhjá mörgum hæfileikaríkum og efnilegum rithöfundum, bækur þeirra hafa ekki hlotið náð fyrir augum útgefenda og hafa þar af leiðandi aldrei litið dagsins ljós.”
Það eru til fleiri íslensk sjálfútgáfufyrirtæki, Nykur, Rúnatýr, Óðinsauga og svo mætti lengi telja.


Uppfært!  Ekki mælt með því að nota þessa útgáfu til þess að gefa út, þekktir fyrir að hlunnfara höfunda sína en þeir eru tengdir við PublishAmerica.  Allavega eru PublishAmerica þekktir fyrir það, þori ekki að fullyrða um PublishIcelandica.  


Á hinn bóginn er hægt að nýta sér ráðin þarna að einhverju leyti.


Vefútgáfa.  Hægt að birta bækur sínar þar.  Ókeypis upp að 500 síðum (100 mb).  Frábært til þess að birta sýnishorn úr bókum sínum eða kynna hana.

Bókamessan í bókmenntaborg


Þarna verður m.a kynning á sjálfsútgáfu fyrir þá sem hafa áhuga og tilboð á jólabókunum frá forlögunum.

BÓKAMESSA Í BÓKMENNTABORG
Glóðheitar bækur og fjölbreytt dagskrá í Ráðhúsi Reykjavíkur og Iðnó 12. og 13. nóvember
Helgina 12. – 13. nóvember standa Félag íslenskra bókaútgefenda og Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO fyrir bókamessu í Ráðhúsi Reykjavíkur og Iðnó. Í fyrsta sinn er haldin glæsileg bókamessa hérlendis þar sem íslenskir útgefendur kynna nýja titla sem koma út nú fyrir jólin. Um leið verður fjölbreytt dagskrá fyrir fólk á öllum aldri í Iðnó báða dagana, bæði í stóra og litla sal. Einnig verður dagskrá í kaffihúsi Ráðhússins, Öndinni, og sögubíll Borgarbókasafnsins, Æringi, verður á svæðinu.
Meðal dagskráratriða í Iðnó má nefna „Græna sófann“, en þar fá ýmsir umsjónarmenn, svo sem Egill Helgason, Jórunn Sigurðardóttir og Druslubókadömurnar Kristín Svava Tómasdóttir, Salka Guðmundsdóttir og Hildur Knútsdóttir, til sín góða gesti og spjalla um ólíkar bækur. Sigurlaug M. Jónasdóttir kynnir matgæðinga og matreiðslubækur, Erla Hulda Halldórsdóttir sagnfræðingur ræðir við höfunda ævisagna sem byggja á rituðum heimildum og Jón Proppé listheimspekingur fer yfir íslenska listasögu á 50 mínútum. Leynifélagskonurnar Brynhildur Björnsdóttir og Kristín Eva Þórhallsdóttir sjá síðan um metnaðarfulla dagskrá fyrir börn.
Að auki verður boðið upp á upplestur, jóga fyrir börn, barnanudd og föndursmiðju, að ógleymdri vísindastund með Ævari vísindamanni. Áhugafólki um stjörnuspeki gefst kostur á að hitta Gunnlaug Guðmundsson stjörnuspeking, Kristín Tómasdóttir svarar spurningum stelpna frá A – Ö og svo mætti lengja telja. Kaffiveitingar verða á boðstólum í Iðnó og á Öndinni og gestir geta því átt notalega stund um leið og þeir kynna sér bókaútgáfu ársins í þessum tveimur byggingum við Tjörnina.
Nánari upplýsingar um messuna má sjá á vef Reykjavíkur Bókmenntaborgar UNESCO, www.bokmenntaborgin.is og þar er einnig hægt að nálgast ítarlega dagskrá.
Um leið vekur Félag íslenskra bókaútgefenda athygli á Bókatíðindum sem dreift verður inn á öll heimili landsins þessa dagana.
Kristján B. Jónasson kbjonasson@gmail.com - S. 8997839 Sigurður Svavarsson sigurdur@opna.is – S.
Auður Rán Þorgeirsdóttir audur.ran.thorgeirsdottir@reykjavík.is – S. 5901524 Kristín Viðarsdóttir kristin.vidarsdottir@reykjavik.is – S. 8634319


http://www.bokautgafa.is/images/stories/bokamessa_i_bokmenntaborg.pdf

http://bokmenntaborgin.is/

http://www.facebook.com/BokmenntaborginReykjavik


Tuesday, November 8, 2011

Tvær íslenskar fantasíur

Í ár koma út hvorki meira né minna en tvær alíslenskar fantasíur að erlendri fyrirmynd: bókin Fimm þjófar eftir Jón Pál Björnsson og bókaflokkurinn Meistari hinna blindu eftir Elí Freysson. Ég er ekki viss með Fimm hringa, en Meistari hinna blindu á að vera skrifuð meira fyrir ung-fullorðna (young adult) en fyrir börn, en lengi vel hafa fantasíur og ævintýri verið talin barnaefni hér á landi. Getur verið að loksins sé hinn þröngsýni íslandsmarkaður að opna sig fyrir alvöru fantasíum?

Upplýsingar um bók Jóns Páls má finna hér:

Fimm þjófar - Eymundsson

Upplýsingar um bók Elís má finna hér:

Meistari hinna blindu - Sögur útgáfa

Sýnishorn úr bók Elís má finna á þessari slóð:

Meistari hinna blindu - Sýnishorn

Líkaðu við Meistara hinna blindu á Facebook:

Meistari hinna blindu - Facebook

Þetta verða pottþétt jólabækurnar mínar í ár. Ég er ekki aðeins ánægð vegna þess að íslenski markaðurinn er að opna sig, heldur vegna þess að ég veit um marga sem hafa verið að skrifa fantasíur á Íslandi en hvergi fengið inni vegna hræðslu útgefenda við þetta bókmenntaform. Erlendar fantasíur, bæði á ensku og þýddar, hafa löngum verið að gera það gott hér á landi, og nú virðist sem við íslendingar getum farið að bæta okkar eigin fantasíum við.

Allir að styðja fantasíubyltinguna! Vantar þig góðar jólagjafir, eða eitthvað bitastætt að lesa?

Vertu með!
Keyptu eintak ;).