Fyrir tíma rafljósins þ.e. ljósaperunar þá voru bækur lesnar án þeirra þæginda sem við höfum í dag. Flestir hafa þá kannski setið úti og lesið í dagsbirtunni og ekki getað notið þeirra gæða sem við erum svo vön. Gæða eins rafmagns, ljósaperu og tölvu, allt eru þetta gæði sem fólk á öðrum tíma gat ekki fengið að njóta.
Við njótum því foréttinda í dag, sem þekktust vart á öðrum tímum. Sjaldan höfum við haft aðgang að jafn miklum upplýsingum og raun ber vitni. Internetið og veraldarvefurinn gefa okkur kost á að njóta þeirra til fulls. Áður fyrr þurfti fólk að hafa sérstök réttindi til að geta fengið að lesa og skrifa bækur, það fengu nefnilega ekki allir að læra að lesa, þótt ótrúlegt megi virðast.
Það fengu nefnilega bara ákveðnar stéttir, sem hægt er að segja að hafi verið ráðandi stéttir og gátu þeir myndað skoðanir fólks á þeim raunveruleika sem það lifði í. Það fengu ekki allir að ganga til náms og í mörgum löndum voru það prestar og aðalsmenn af hærri ættum. Þótt við höfum þennan rétt í dag, þá virðast ekki margir gera sér grein fyrir hve mikils virði hann er.
Á hverjum degi erum við mötuð af alls konar upplýsingum um það hvernig heimurinn er, eða hvernig fjölmiðlarnir vilja að við sjáum heiminn. Líkt og hinar ráðandi stéttir fyrr á tímum vildu móta skoðanir fólks á raunveruleikanum, þá eru fjölmiðlarnir í dag í líku hlutverki. Þeir vilja móta skoðanir okkar á raunveruleikanum og hafa áhrif á hvernig við hugsum.
Það sem við hugsum hefur líka áhrif á þarfir okkar, eða það sem við höldum að við þurfum. Flest viljum við fá upplýsingar um það sem er að gerast í heiminum og í dag kallast það fréttir. Fjölmiðlarnir þurfa að hafa tekjur og eru sumir þeirra "ókeypis", en með auglýsingar af hlutum sem við "þurfum". Hlutverk gæsalappana er til gera ljóst að hlutirnir eru ekki alveg eins og þeir sýnast.
Við þurfum nefnilega ekki alls sem þeir segja að við þurfum, eða að vera eins og þeir láta í ljós. Fjölmiðlarnir eru hins vegar að breytast fyrir tilstilli Internetsins og í dag getur hver sem er komið skoðun sinni á ákveðnu málefni á miklu auðveldari máta enn nokkurn tíman hefur verið hægt. Áður fyrr þurftu greinar sem voru skrifaðar af blaðamönnum að fara í gegnum ritstjóra sem ákvað hvaða greinar voru birtar í fjölmiðlinum.
Í dag getur hver sem er sest niður og komið skoðun sinni á framfæri á hvaða málefni sem er. Þú gætir skrifað bók, búið til tónlist eða tekið upp mynd og komið efni þínu á framfæri til mjög stórs markhóps eða lítils, án þess að vera stór fjölmiðill eða útgáfa. Það væri hægt að segja að þetta sé stundin þín til að koma skilaboðum þínum á framfæri. Hvað vilt þú segja, eða koma á framfæri ?
Magnaður pistill! Svo sannur. Eins og talað út úr mínu hjarta og skrifað á mjög fallegu máli.
ReplyDelete